Kristófer Oliversson, eigandi CenterHótela og formaður Félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu (FHG), segir hóteleigendur þurfa að grípa til róttækra aðgerða til að tryggja að hótelin lifi niðursveifluna vegna útbreiðslu COVID-19 af. Afbókanir fram í sumarið og mikil óvissa setur stórt strik í reikninginn.
Í viðtali við Viðskiptamoggan segist hann hafa verið bjartsýnn um að sumarið gæti bjargast en að ástandið hafa breyst í síðasta mánuði og núna er hann ekki eins bjartsýnn fyrir framhaldinu. „Það þurfi mun róttækari aðgerðir en eru í gangi núna,“ segir Kristófer. Hann segir félagsmenn FHG vera sammála um að útlit fyrir sumrinu hafa breyst í mars.
Hann segir mikilvægt að hótelinu verði tilbúin með áætlun þegar ástandið batnar. „Þótt traffíkin byrji kannski í maí eða júní er það ekki fyrr en komið er fram í júlí sem menn fara að sjá peninga eitthvað að ráði,“ segir Kristófer.
Sjá einnig: Neyðast til að loka fimm af sjö hótelum keðjunnar