Brandari Önnu Svövu Knútsdóttur sló ekki í gegn hjá Reykjavíkurdætrum.
Steiney Skúladóttir og Þura Stína, meðlimir í rappsveitinni Reykjavíkurdætur, undra sig á brandara leikkonunnar Önnu Svövu Knútsdóttur. Brandari Önnu Svövu sem um ræðir er hluti af uppistandi hennar sem hún flytur í uppistandssýningu Björns Braga.
Í uppistandi sínu skýtur Anna Svava á Reykjavíkurdætur. Steineyju og Þuru er ekki skemmt.
Anna Svava komin í eitthvað grínþrot, hitar upp fyrir Björn Braga og stelur einum góðum MC Gauta brandara 4 árum seinna.
— Steiney Skúladóttir (@steiney_skula) September 17, 2019
Steiney segir Önnu Svövu vera komna í grínþrot og stela brandana af Emmsjé Gauta. „Anna Svava komin í eitthvað grínþrot, hitar upp fyrir Björn Braga og stelur einum góðum MC Gauta brandara 4 árum seinna,“ skrifar Steiney á Twitter og vísar í ummæli sem Emmsjé Gauti lét falla árið 2015 þegar hann sagði tónlist Reykjavíkurdætra vera vonda.
„Það er verið að bóka okkur á festivöl um allan heim, spila okkur á útvarpsstöðvum eins og BBC og við vorum að vinna verðlaunin besta up and coming hip hop band í Evrópu. Það er pjúra bara Ísland sem vill ekki sjá okkur. Þetta er svo ljótt kynjamisrétti að ég á ekki orð,“ bætti Steiney við.
Þura Stína tekur undir með Steineyju.
„Fyrir utan Önnu Svövu að gera grín af öllum íslenskum stelpum sem rappa á Íslandi fyrir fullum sal að þá eru Rvkdtr búnar að fá eitt bókunar-request frá hátíðum á Íslandi síðasta árið,“ skrifaði Þura Stína.
Fyrir utan Önnu Svövu að gera grín af öllum íslenskum stelpum sem rappa á Íslandi fyrir fullum sal að þá eru Rvkdtr búnar að fá eitt bókunar-request frá hátíðum á Íslandi síðasta árið.
— Sura Þína (@ThuraStina) September 18, 2019
Sjá einnig: Reykjavíkurdætur sköpuð til að gefa konum pláss: „Við upplifum okkur ekki sem fórnarlömb“