Sjö ára stúlka gekk í gegnum þá hrikalegu lífsreynslu að maður reyndi að ræna henni þar sem hún var að leik í Grafarvogi. Faðir hennar, Ragnar Örn Ottósson, skrifar um atvikið á Facebook.
„Í kvöld gerðist það að maður reyndi að taka 7 ára dóttur mína með sér af leikvellinum í botngötu Funafoldar. Maðurinn gekk að henni og spurði hana hvort hún vildi sjá hundana hans,“ skrifar Ragnar Örn.
Þegar stúlkan neitaði því tók maðurinn hana upp og hélt að sér og gerði sig líklegan til að ganga með hana á brott.
„Hún öskraði, fór að gráta og sparkaði í punginn á honum. Við það sleppti hann henni og hljóp á brott,“ skrifar faðirinn.
Hann segir að engin vitni hafi verið að atburðinum. Lýsing stúlkunnar á manninnum er eftirfarandi: Dökkhærður, brún augu, milli 170 cm til 180 cm. Íklæddur gráum íþróttabuxum og grárri peysu. Hún sagði hann vera eitthvað freknóttan. Maðurinn er Íslendingur.
„Ég biðla til allra í Foldahverfi að skoða myndavélakerfi sín sem kynnu ađ hafa tekið eitthvað upp. Mögulega dyrasímakerfi Ring e.t.c. við munum ekki gefast upp fyrr en þessi maður finnst,“ skrifar Ragnar.
Hann segir að lögreglan sé með málið skráð. Atvikið gerðist um kl 20:20 þann 7 júní.