Hér verða rakin helstu tíðindi frá lögreglu í dag; eitthvað var um aðstoðarbeiðnir vegna veikinda og svo vegna fólks í annarlegu ástandi. 5 ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur; málin kláruð með sekt; einn ökumaður var stöðvaður réttindalaus og annar fyrir að aka yfir á rauðu ljósi.
Tvær tilkynningar bárust um hávaða frá heimahúsi, og reyndist það vera ágreiningur milli aðila sem var afgreiddur á vettvangi.
Einn ökumaður var síðan tekinn fyrir of hraðan akstur; tveir ökumenn hirtir fyrir að aka á móti rauðu umferðarljósi; tveir menn handteknir fyrir að valda umferðarslysi og fyrir að reyna að flýja vettvang – grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis eða annarra fíkniefna.