Lögregla gerði tilraun til að stöðva ökumann á bihjóli í gær klukkan 21:22 Laugardalunum, farþegi var á hjólinu. Ökumaður stoppaði ekki og veitti lögregla þá eftirför sem endaði með umferðaróhappi. Engin meiðsl urðu á fólki er fram kemur í dagbók lögreglu.
Farþegi hjólsins komst undan en ökumaðurinn var handtekinn, grunaður um m.a. akstur undir áhrifum fíkniefna og brot á umferðarlögum. Ökumaðurinn var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.
Lögregla hafði í nógu að snúast í nótt. Nokkrir voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.
Þrír voru þá handtekinir í hverfi 108 klukkan 04:30 í nótt vegna líkamsárásar. Í dagbók lögreglu segir að ekki sé vitað um meiðsl árásarþola en að þau handteknu hafi verið vistuð í fangageymslu fyrir rannsókn lögreglu.