Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segist í samtali við RÚV ekki geta tjáð sig um lögreglurannsóknina yfir föður sínum vegna vanhæfis; eigi það ekki aðeins við um rannsóknina heldur einnig alla umræðu.
Eins og komið hefur fram þá sagði Sigríður Björk sig frá rannsókn á meintri skipulagningu hryðjuverka í lok september, eftir að nafn föður hennar, Guðjóns Valdimarssonar, kom upp við rannsókn málsins.
Síðar kom fram að húsleit hafði verið gerð á heimili Guðjóns; hann yfirheyrður samhliða því vegna gruns um sölu og kaup á ólöglegum skotvopnum.
Fjölmiðlar hafa sagt frá því að í skýrslu lögreglu yfir Guðjóni kemur fram að hann hafi ítrekað vísað til Sigríðar dóttur sinnar í skýrslutökunni; látið að því liggja að lögreglumenn ættu ekki að yfirheyra hann, í ljósi stöðu dóttur sinnar.
Sigríður Björk segist telja ástæðulaust að hún bregðist við málinu með frekari hætti:
„Ég myndi ekki halda það, nei. Þetta hefur ekkert með mig að gera.“