Rúmlega tíu þúsund manns eru nú í einangrun vegna kórónuveirunnar en greindust 1.175 innanlands í gær.
Þá greindust 102 á landamærunum en nú hafa rúmlega 36.000 manns greinst smitaðir hér á landi frá því í febrúar 2020.
Samkvæmt upplýsingum á síðunni covid.is kemur fram að 8.084 séu í sóttkví í dag, samanborið við 7.876 í gær og því töluverð aukning á milli daga.
Á Landspítalanum liggja nú 37 sjúklingar með kórónuveiruna, þar af eru átta á gjörgæslu og fimm í öndunarvél.
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á vefnum covid.is en þar eru tölulegar upplýsingar uppfærðar daglega.