Rúnar Gunnarsson Pírati segir að ekki alls fyrir löngu hafi verið undirrituð viljayfirlýsing um samstarf sveitarfélagsins Múlaþings og University of Highlands and Islands (U.I.H) í Skotlandi.
„Með tilkomu þessa samstarfs opnast miklir möguleikar fyrir námsmenn á Austur- og Norðurlandi hvað háskólamenntun varðar,“ enda sé „námsframboð mikið og skólinn hefur lagt mikla áherslu á fjarkennslu. Skóli þessi býður upp á nám sem í fljótu bragði virðist sniðið að okkar landshluta; það er, hægt er að mennta sig í haf- og strandsvæðaferðaþjónustu, landbúnaði og víkingafræðum svo fátt sé nefnt.“
Rúnar segir mál þetta vera allt hið besta og að ljóst sé að þetta „opnar fyrir annars konar nám en hefðbundið er á Íslandi og spennandi verður að sjá hvað verður. En ég leyfi mér að dreyma aðeins og langar að velta upp þeim möguleikum sem gætu opnast með þessu samstarfi,“ nefnir hann og bætir við:
„Nemendur U.I.H telja einhverjar þúsundir, 13 starfstöðvar eru í boði og yfir 70 rannsóknarsetur. Þegar íslenskir nemendur bætast í þarf að koma þeim á milli starfsstöðva hér og erlendis. Hvað með að nota tækifærið og byggja upp samgöngur milli Skotlands og Norðausturlands?“
Hann segir að „flugtími frá Aberdeen til Egilsstaða er um það bil ein klukkustund og siglingartími frá Scrabster til Seyðisfjarðar um sólarhringur. Það eru alþjóðaflugvellir bæði á Egilsstöðum og Akureyri, og á Seyðisfirði er eina ferjuhöfn landsins sem einnig er landamærastöð. Það liggur því beint við að koma á beinum reglulegum samgöngum þar á milli, ekki bara fyrir farþega heldur einnig til að auka aðgengi fyrirtækja að nýjum flutningsleiðum.“
Rúnar telur að „þessi skref væru stórkostleg framför fyrir Norðausturland í heild sinni og yrðu hluti að uppbyggingu háskólasamfélags á Austurlandi. Þessar aðgerðir eru í takt við kosningastefnu Pírata sem fjallar meðal annars um ungt fólk og framtíðina, aukið aðgengi að námi og þjónustu í heimabyggð og nýsköpun.“