„Að ósk sóttvarnarlæknis hafa Samtök atvinnulífsins fundað með honum vegna óvissustigs sem lýst hefur verið yfir vegna faraldurs kórónaveiru (COVID-19). Samkvæmt viðbragðsáætlun almannavarna hafa SA hlutverki að gegna þegar heimsfaldrar verða. Það felst aðallega í að miðla upplýsingum til fyrirtækja. Það er mikilvægt að upplýsingar sem okkur berast um stöðu mála hverju sinni grundvalli ákvarðanir og viðbrögð.“
Þetta segir Halldór Benjamín Þorbergsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, í Mannlífi sem kom út í morgun. Hann segir samtökin boðin og búin til að vinna með yfirvöldum í aðgerðum þeirra og hvetur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama og sýna starfsmönnum skilning sem mögulega munu þurfa að vera fjarri vinnu.
„Samtök atvinnulífsins hvetja til yfirvegunar í máli og gjörðum þegar kemur að umræðu um kórónaveiruna. Förum varlega og nálgumst verkefnið af ábyrgð en án upphrópana. Slíkt er vænlegt til árangurs.“
Hér má lesa pistil Halldórs í heild.