Þjálfari KR, Rúnar Kristinsson, sýndi með afgerandi hætti stuðning við þolendur ofbeldis í gær, fyrir, á meðan, og eftir leik KR og Leiknis í úrvalsdeildinni – var með húfu á höfðinu allan tímann sem á stendur FO, sem útleggst sem „Fokk Ofbeldi“ og er þekkt slagorð gegn ofbeldi af öllu tagi.
Rúnar lék á sínum tíma 104 landsleiki fyrir Íslands hönd, en enginn annar leikmaður hefur spilað eins marga leiki fyrir landsliðið, og Rúnar og þekkir auðvitað KSÍ og knattspyrnuheiminn íslenska eins og lófann á sér.
Hann er án alls vafa einn besti fóboltamaður og fótboltaþjálfari sem Ísland hefur af sér alið.
Rúnar hefur fengið mikið hrós á samfélagsmiðlum fyrir húfuna.