Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði sæmilega hlýtt í dag, sumardaginn fyrsta.
Þar segir að víða verði bjartviðri og sæmilega hlýtt í sólinni, en skýjað og lítilsháttar skúrir á Suðvestur- og Vesturlandi. Suðaustan kaldi verður vestanlands í dag, annars hægari vindur.
Austlæg átt 3-10 m/s á morgun. Rigning eða skúrir sunnantil á landinu en léttskýjað norðan heiða. Hiti verður 5 til 12 stig yfir daginn.
Norðaustan kaldi á laugardag, með björtu veðri suðvestanlands en dálitlum skúrum eða éljum á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 2 til 12 stig, hlýjast syðra.