- Auglýsing -
Lögreglan stöðvaði ökumann í nýliðinni viku vegna gruns um að hann væri að aka undir áhrifum fíkniefna. Ökumaðurinn reyndist hafa um 70 grömm af kannabis í fórum sínum og sömuleiðis áhöld sem benda til dreifingar efna.
Ökumaðurinn var með svar á reiðum höndum þegar lögreglan hafði af honum afskipti. Hann kvaðst hafa verið að birgja sig upp vegna sóttkvíar sem var í vændum vegna útbreiðslu COVID-19.
Þetta kemur fram á vef lögreglunnar þar sem farið er yfir helstu verkefni síðustu viku.