Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, er gríðarlega létt eftir að sakamálarannsókn á hendur Samherja lauk með greiðslu upp á hartnær 300 milljónir króna. 15 milljónir króna af upphæðinni er sekt á fyrirtækin og afgangurinn endurálagning og dráttarvextir vegna vandgoldinna gjalda. Morgunblaðið segir frá því að Skatturinn hafi lokið ítarlegri úttekt sinni á Samherja og tengdum félögum.
Morgunblaðið upplýsir að að úttektinni hafi lokið með „endurálagingu og sátt“ á milli Skattsins og Samherja. Gefið er til kynna í fréttaskýringu Gísla Freys Valdórssonar að Samherji sé fórnarlamb fréttaskýringaþáttarins Kveiks í þeim skilningi að Samherjamenn hafi verið sakaðir um stórfelld brot. Þá er viðtal í blaðinu við Þorstein Má um þann létti sem færðist yfir hann við þá niðurstöðu Skattsins að hann sé ekki sekur um afbrot.
300 milljónir króna eru auðvitað smáaurar á mælikvarða Samherja og sjálfsagt að láta þá af hendi rakna til Skattsins til að undirstrika kærleika. Í fleygum dægurlagatexta segir að stjórnmálamaður nokkur hefði fengið „sekt í sælu breytt“.
Enn stendur rannsókn á Íslandi og í Namibíu á mútumáli Samherja þar sem Þorsteinn Már og félagar eru sakaðir um alvarleg brot …