Það ríkir eðlilega mikil gleði hjá tónlistarparinu Arnari Frey Frostasyni og Sölka Sól Eyfeld, en þau voru að eignast sitt annað barn.
Fyrir á parið fallega dótturina Unu Lóu, sem verður þriggja ára gömul á þessu ári.
Salka Sól birti afar fallega mynd af stoltum og hamingjusömum foreldrunum með splunkunýja krúttkrílinu, á Instagram.
Með myndinni skrifar hin skemmtilega og fjölhæfa Salka Sól einfaldlega:
„Það er svo hellað að fæða barn. En það er svo þess virði. Velkominn í heiminn gutti litli. Allir flottir hér.“
Mannlíf óskar fjölskyldunni innilega til hamingju.