Salmann Tamimi, forstöðumaður Félags múslima á Íslandi, er látinn. Hann lést í gærkvöldi. Þetta kemur fram í færslu félagsins á Facebook.
„Þessa manns verður sárt saknað.. Við viljum minna fólk á að bera virðingu fyrir aðstæðum sem fjölskylda hans er í og fara ekki heim til hans og hringja i fjölskyldumeðlimi stanslaust. Það eina sem við getum gert núna er að biðja Allah að blessa sál hans og inshallah hann verður háttsettur í paradís.“
Salmann fæddist í Palestínu árið 1955 en flutti til Íslands árið 1966. Hann stofnaði félagið Ísland-Palestína sem og trúfélagið Félag múslíma á Íslandi.