Samherji hefur afhent embætti héraðsaksóknara dagbækur uppljóstrarans Jóhannesar Stefánssonar frá því að hann stýrði félögum Samherja í Namibíu. Mogginn segir fá þessu í dag og vitnar í nýtt myndband Samherja þar sem skuldinni af meintum mútugreiðslum er enn skellt á millistjórnandann. Fram kemur að ekkert í dagbókarskrifunum gefi til kynna að Jóhannes hafi fengið fyrirmæli frá yfirstjórn Samherja um mútugreiðslur eða aðra óeðlilega viðskiptahætti. Umræddar dagbækur munu hafa fundist á „drifi sem fannst“ við starfslok Jóhannesar árið 2016.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, viðurkennir mistök Samherja en segir að þau felist í að að hafa ekki haft betra eftirlit með rekstrinum í Namibíu. Á ýmsu hefur gengið í ímyndarstríði samherja. Jón Óttar Ólafsson rannsakandi hefur unnið fyrir félagið og meðal annars áreitt og setið um Helga Seljan blaðamann Kveiks. Samherji hefur svarið af sér að hafa vitað af brotum Jóns Óttars. Þorbjörn Þórðarsson, fyrrverandi fréttamaður Stöðvar 2 og lögfræðingur, hefur einnig lagt hönd á plóg í þágu Samherja. Áherslan hefur verið sú að koma óorði á Helga Seljan og Jóhannes uppljóstrara. Í Namibíu sitja enn nokkrir í varðhaldi fyrir að hafa þegið mútur frá sjávarútvegsfyrirtækinu ..