Laugardagur 7. september, 2024
9.7 C
Reykjavik

Samherji mokar inn seðlunum: Græddu 21 milljón á dag – tæpa milljón á klukkustund

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Samherji hagnaðist um 7,8 milljarða króna á síðasta ári, en heimsfaraldurinn hafði víðtæk áhrif á reksturinn. Forstjóri félagsins segir að reynt hafi verulega á samstöðu allra og útsjónarsemi, tekist hafi að halda úti skipaflotanum, vinnslum og annarri starfsemi þannig að reksturinn hafi haldist svo að segja óbreyttur.

 

Aðalfundur Samherja var haldinn í gær og þar var ákveðið var að greiða ekki út arð vegna síðasta árs.

 

Í stuttu máli sagt þá voru rekstrartekjur samstæðunnar 46,5 milljarðar króna á árinu 2020 samkvæmt rekstrarreikningi; hagnaður af rekstri samstæðunnar nam tæplega 8 milljörðum króna.

Ársreikningur Samherja eru ekki í íslenskum krónum heldur í evrum, en upphæðir eru umreiknaðar í íslenskar krónur á meðalgengi ársins 2020.

- Auglýsing -

 

Samherji er því áfram í hópi stærstu skattgreiðenda landsins og greiddu Samherji og starfsmenn 5 milljarða króna til hins opinbera á Íslandi á árinu 2021.

 

- Auglýsing -

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja er eðlilega ánægður með útkomuna:

 

„Þegar litið er til síðasta árs, má segja að reksturinn hafi verið hálfgerð rússibanareið vegna áhrifa heimsfaraldursins. Vegna þessa reyndi verulega á samstöðu allra og útsjónarsemi. Okkur tókst að halda úti skipaflotanum, vinnslunum og annarri starfsemi, þannig að reksturinn hélst svo að segja óbreyttur. Þetta er afrek samstillts starfsfólks, leyfi ég mér að fyllyrða.

 

Ágætt dæmi um þær áskoranir sem við tókumst á við er vinnsluhúsið á Dalvík, sem var tekið í notkun fyrir rúmu ári síðan. Með nýjum búnaði og gerbreyttri tækni komu engir utanaðkomandi sérfræðingar í húsið mánuðum saman, áskoranir starfsfólksins voru því margar en samt sem áður var slegið framleiðslumet á síðasta fiskveiðiári. Íslenskt hugvit er áberandi í húsinu, svo og framleiðsla flókins búnaðar. Fiskvinnslurnar okkar vinna að stórum hluta gæða afurðir sem fara beint á borð neytenda veiðs vegar um heiminn.

 

Annað gott dæmi er koma nýs uppsjávarskips Samherja, Vilhelms Þorsteinssonar EA fyrr á þessu ári, allar aðstæður við smíði skipsins voru krefjandi vegna heimsfaraldursins. Vilhelm er án efa eitt glæsilegasta skip íslenska flotans og íslensk hátækni er áberandi um borð, auk þess að allur aðbúnaður er góður. Með tilkomu þessa skips dregur verulega úr olíunotkun þar sem öll hönnun og búnaður miðast við að minnka kolefnissporið.“

 

Eigið fé Samherja í árslok 2020 var samtals 78,8 milljarðar króna og eiginfjárhlutfallið 72%, sem undirstrikar að félagið stendur fjárhagslega vel að vígi; ársuppgjörið var kynnt á aðalfundi Samherja sem fram fór í gær, 30. september. Ársreikningunum hefur verið skilað til ársreikningarskrár.

 

Stjórn félagsins var endurkjörin. Formaður stjórnar er Eiríkur S. Jóhannsson. Auk hans eru í stjórn Dagný Linda Kristjánsdóttir, Helga Steinunn Guðmundsdóttir, Kristján Vilhelmsson og Óskar Magnússon.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -