Neytandi vakti athygli Mannlífs á gríðarlegu okri hjá Samkaup strax á Mývatni. Þar sá hann brauðhleif sem kostaði 909 krónur. Verðlagningin verður að flokkast sem okur og ekki með nokkru móti hægt að botna í slíku verði á einu brauði.
Neytandin sem var á ferðinni með hópi fólks ákvað að skella sér í Samkaup strax og rak þá augun í verðið á brauðinu „Datt um þetta brauð sem mér ofbauð verðið á“
Landsbygðin líður fyrir
Mannlíf hefur fjallað áður um gríðarlega háa verðlagningu hjá Krambúðinni sem er í eigu Samkaupa líkt og Samkaup strax. Fólk úti á landsbyggðinni margt hvert neyðist til þess að versla í verslunum sem þessum á vegum Samkaupa. Margir ferðist frekar til höfuðborgarinnar eða annara staða sem bjóða upp á lágvöruverðsverslanir og byrgja sig upp af matvælum til þess að sleppa við að versla þar. Þetta leggur fólk á sig í stað þess að láta okra á sér og þrátt fyrir að eldsneyti sé dýrt og yfirleitt dýrara úti á landi en á höfuðborgarsvæðinu. Samt borgar það sig að leggja land undir fót og fara úr heimabyggð eftir vistum.
Krambúðin nýtir sér að fólk hefur ekki val – VERÐKÖNNUN – Sláandi verðmunur allt að 54 prósent
Mannlíf hvetur neytendur til þess að vera vel vakandi yfir verðlagi. Senda má ábendingar er snúa að öllum neytendamálum á [email protected]