Samkomubann hefur verið sett á hér á landi vegna COVID-19 kórónuveirunnar.
Á blaðamannafundi sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra efndi til í Ráðherrabústaðnum, kom fram að samkomur verða takmarkaðar í fjórar vikur frá miðnætti 15. mars, aðfararnótt mánudags. Um er að ræða samkomur þar sem fleiri en 100 manns koma saman. Á viðburðum þar sem færri koma saman er gert ráð fyrir því að tveir metrar séu á milli fólks. Gert er ráð fyrir því að framhaldsskólar og háskólar loki.
„Ég vænti þess að það takist gott samstarf með þjóðinni,“ sagði Svandís.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra greindi því á fundinum að heilbrigðisráðherra hefði fengið sendar tillögur um samkomubann frá sóttvarnalækni. Engin fordæmi eru fyrir samkomubanni í sögu landsins.
„Okkar leiðarljós hefur hingað til verið að fylgja ráðum okkar besta heilbrigðisstarfsfólks,“ sagði Katrín.