Finnur Ricart Andrason, formaður Ungra umhverfissinnadrason, segir Guðlaug Þór Þórðarson, umhverfis-,orku- og loftslagsráðherra, fara með rangt mál, þar sem fjórir ráðherrar kynntu uppfærða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, en þetta kom fram á mbl.is.
Finnur gagnrýnir áætlunina; segir hana sýna fram á mikið metnaðarleysi íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum.

Guðlaugur Þór sagði á blaðamannafundin að losun frá landnotkun væri náttúruleg losun; væri því nokkuð frábrugðin annarri losun á Íslandi. Það segir Finnur ekki vera rétt:
„Losun frá landnotkun er einmitt af mannavöldum,“ segir Finnur. Hann bætir við að losun frá landnotkun sé stærsti hluti af losun Íslands; því sé það mjög alvarlegt að ráðherra málaflokksins fari með rangt mál.
„Vissulega þurfum við að losa okkur við jarðefnaeldsneyti, en það er bara ekki rétt að það sé stærsti hluti af þeim aðgerðum sem þarf að grípa til, semsagt að draga úr losun,“ segir Finnur.
Heldur áfram:
„Heilt yfir myndi ég segja að við fögnum því að það sé loksins búið að uppfæra þessa aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Það er löngu kominn tími á það. Það eru fjögur ár síðan síðast. Þannig að það er svona allra síðasti séns þannig að ráðuneytið myndi standast lög. Að því sögðu þá er þetta langt frá því að vera nóg, nær ekki okkar alþjóðlegu skuldbindingum og ekki innlendum markmiðum ríkisstjórnarinnar. Þannig að þetta eru í raun mikil vonbrigði,“ segir Finnur og bætir því við að þau hjá Ungum umhverfissinnum hafi beðið eftir áætluninni í marga mánuði; og að um helmingur aðgerðanna ófjármagnaður:
„Í fjárlögum fyrir þetta ár og í fjármálaáætlun sömuleiðis er gert ráð fyrir samdrætti í fjármagni til loftslagsaðgerða,“ segir Finnur og bætir við að Ungir umhverfissinnar setji spurningamerki við trúverðugleika aðgerðaáætlunarinnar.
Finnur segir einnig gott að haft hafi verið samráð við atvinnulífið; hann hefði þó viljað sjá betra samráð við almenning sem og umhverfisverndarsamtök:
„Okkur finnst þetta bara rosa alvarlegt. Ekki bara af því okkur finnst gott þegar er leitað til okkar heldur af því að við búum yfir rosa mikilli þekkingu, sérfræðiþekkingu í þessum málaflokki.“
Finnur segir að lokum að „það er ekki endilega verið að uppfæra aðgerðaráætlun á réttum forsendum og það er ekki talað við réttu aðilana á leiðinni.“