- Auglýsing -
Aron Einar Gunnarsson segir ökklaaðgerð sem hann gekkst undir í dag hafa gengið vel.
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sleit liðband í ökkla þegar hann var tæklaður í leik með Al Arabi í Katar á föstudagskvöld. Aron Einar gekkst undir ökklaaðgerð í Katar í dag vegna meiðslanna.
Aðgerðin gekk vel er fram kemur í færslu á Instagram-síðu Arons.
„Þessi litla aðgerð gekk vel,“ skrifar Aron meðal annars undir mynd af sér í sjúkrarúminu. Í færslunni þakkar hann einnig fyrir allar góðu kveðjurnar sem honum hefur borist.