Glæpir finna sér farveg. Þetta sagði Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, á fundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í gær þar sem hún ræddi þær áskoranir sem blasa við lögreglunni í ljósi útbreiðslu COVID-19.
Sigríður nýtti tækifærið til að vara fólk við óprúttnum aðilum sem reyna nú að hagnast á útbreiðslu kórónaveirunnar.
„Afbrotamenn eru að reyna að hagnast á þessum faraldri,” sagði Sigríður. Hún sagði afbrotamenn nýta sér það að fólk sé óttaslegið.
Sigríður segir töluvert af eftirlíkingum af grímum, lyfjum og vítamínum sem eiga að lækna COVID-19 vera í umferð. Hún biður fólk um að vanda valið þegar kemur að því að versla slíkar vörur og kaupa aðeins af viðurkenndum söluaðilum og í öruggum verslunum.
Hún biður fólk einnig um að treysta þeim upplýsingum um útbreiðslu veirunnar sem koma frá opinberum aðilum.