Útgerðarfyrirtækið Samherji hefur undanfarið unnið að því að draga úr starfsemi sinni í Namibíu með það að markmiði að hætta öllum rekstri í landinu. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu á vef Samherja. Þar segir að áhersla sé lögð á að finna lausnir sem henta namibísku samfélagi.
Af þeim þremur skipum sem hafa stundar veiðar í namibískri lögsögu undanfarið ár, Geysir, Heinaste og Saga, er aðeins eitt eftir í Namibíu og er þar um að ræða verksmiðjutogarann Heinaste er fram kemur í tilkynningunni.
Þá er haft eftir Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra Samherja, að niðurstaða sé komin í mál í tengslum við veiðar skipsins Heinaste við Namibíu en Arngrímur Brynjólfsson, skipstjóri Heinaste, var í gær dæmdur til að greiða átta milljónir króna í sekt eða að öðrum kosti yrði hann dæmdur í 12 ára fangelsi. Hann var fundinn sekur um ólöglegar veiðar við strendur Namibíu.
„Það er mjög ánægjulegt að mál vegna skipsins Heinaste og skipstjóra þess var leitt til lykta fyrir dómi í Namibíu á miðvikudag. Þetta skapar ný tækifæri í rekstri skipsins og við viljum að þau verði nýtt í Namibíu,“ er haft eftir Björgólfi í tilkynningunni.
Í tilkynningunni segir þá að Samherji leggi áherslu á að finna lausnir „sem henta namibískum áhafnarmeðlimum skipsins, namibísku samfélagi og minnihlutaeigendum eignarhaldsfélags Heinaste“. Reiknað er með að skipið verði leigt út til namibískra aðila sem stunda útgerð í landinu.
Tilkynninguna má lesa í heild sinni á vef Samherja.