Svo virðist sem alvarleg staða milli færeyskra kennara og nemenda sé komin upp en meðlimur í kennarasambandi Færeyja hefur kvatt kennara til þess að vera duglegri að tilkynna ofbeldi sem þeir verða fyrir af hálfu nema. Eyðbjartur S. Skaalum, færeyskur kennari, skrifar um málið í Skúlablaðinu en þar segir hann kennara í nágrannalöndum hafa þurft að hætta störfum vegna ofbeldis sem þeir verða fyrir.
Eyðbjartur segist hafa verið í sambandi við kennara sem hafi lent í því að nemendur kasti í þá pennum og bókum en hann segir það tímaspursmál hvenær ráðist verði á þá með spörkum og höggum. Auk þess þurfi kennararnir að þola andlegt ofbeldi í starfi sínu. Þrátt fyrir að ekki sé hægt að vísa í neinar kannanir í þessum efnum segist Eyðbjartur sannfærður um að kennarar þurfi að þola þetta víða.