Meistari orðsins og margt fleira en það er Glúmur Baldvinsson – sem kann að koma auga á spaugilegu hliðarnar á samfélaginu og benda á að viðkomandi sé enginn keisari heldur einfaldlega ekki í neinum fötum:
„Enginn miðill á byggðu bóli getur verið sjálfhverfari en sjónvarp allra landsmanna. Eða öllu heldur allra starfsmanna.“
Og Glúmi er einfaldlega misboðið og útskýrir hvers vegna:
„Nú er á dagskrá spurningaþáttur þar sem þátttakendur eru annað hvort núverandi starfsmenn RÚV eður fyrrverandi starfsmenn RÚV. Og allar spurningar um RÚV og núverandi og fyrrverandi starfsmenn RÚV. Nær hugmyndaflugið ekki út fyrir steypta veggi Efstaleitis?
Og næst á dagskrá Gísli Marteinn þar sem RÚV mun halda áfram að spjalla við RÚV. Um RÚV. Í fáum dráttum: Hér er RÚV um RÚV frá RÚV til RÚV.
Í alvöru? Ég neyðist til að fara á Klausturbarinn og drekka mig til óminnis.“