„Trúverðugleiki okkar gæti skaðast,” segir Þór Heiðar Ásgeirsson, forstöðumaður Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, þegar hann er spurður út í hvort hann telji Samherjamálið svokallaða geta haft afleiðingar fyrir skólann og nemendur hans í viðtali við Fiskifréttir.
Hann segir að rannsaka þurfi málið en viðurkennir að það líti ekki vel út. Hann tekur fram að Samherji hafi alltaf reynst skólanum vel og þess vegna sé hann sérstaklega undrandi. „Þess vegna er maður miður sín og undrandi yfir stöðunni,” segir hann.
Þess má geta að Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna hefur starfað á Íslandi í rúm 20 ár. Starfsemi hans er hluti af þróunaraðstoð Íslendinga og hingað koma nemendur frá þróunarlöndum í sex mánaða þjálfunarnám. Námið er haldið á hverjum vetri fyrir sérfræðinga á sviði sjávarútvegs og fiskeldis í þróunarlöndum. Nemendur koma m.a. frá Namibíu en viðskipti Samherja þar í landi hafa verið í brennidepili undanfarið.
Sjá einnig: Samherji opinberaður