Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar grein er ber yfirskriftina:
Veðurstofa Sjálfstæðisflokksins frestar fundi.
Þar segir:
„Í gær bárust vægast sagt furðulegar fregnir um að óformlegur hittingur formanna málefndanefnda Sjálfstæðisflokksins hefði að vel ígrunduðu máli komist að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt sé að fresta fyrirhuguðum landsfundi flokksins fram á haust. Þrátt fyrir að hópurinn búi að því er virðist yfir einhverjum leyni/töfragögnum um veðurfar þá sér hann sér ekki fært að deila með okkur hinum hver sé hin fullkomna dagsetning veðurfarslega séð nema bara „líklega bara í haust.““
Segir einnig:
„Í umræddri frétt kemur einnig fram að síðan árið 2015 hafa aðeins tveir landsfundir verið, þrátt fyrir að þeir eigi að vera að jafnaði annað hvert ár. Forysta flokksins í seinni tíð hefur því verulega látið reyna á merkingu orðanna „að jafnaði.” Raunar er landsfundaskuld flokksins orðin svo mikil að höfundur leggur það til að við göngum að tillögum starfshópsins um að halda landsfund í haust, auk þess að halda í þau áform að hafa landsfund í febrúar, og jafnvel reyna að kreista inn einum fundi í sumar (veðurfarsnefndin hlýtur að verða ánægð með það) þannig að flokkurinn verði kominn á réttan kjöl í það minnsta hvað þetta varðar.“
Daníel færir í tal að það sé „reyndar ómálefnalegt að reyna að kenna forystu flokksins um þennan skort á landsfundum, það voru óviðráðanlegar ástæður fyrir þessu öllu saman, kosningar, samkomutakmarkanir og fleira. Ég meina það er ekki eins og að þetta sama fólk hafi verið í ríkisstjórn eða eitthvað svoleiðis… Svo er það kirsuberið ofan í lygakokteilinn sem hefur verið framreiddur en það er að afrakstur þessarar yfirnáttúrulegu nefndar, sem hefur varið öllum mánuðinum í að garfa í veðurmælingagögnum og setja upp hin flóknustu reiknirit, er að það eigi helst að halda fundinn „líklegast bara í haust.““
Spyr:
„Líklegast bara í haust? Er það það eina sem þið hafið upp á að bjóða? Að það sé vísindalegur fasti að það rigni hér eldi og brennisteini og að fólk verði úti fyrir utan Laugardalshöllina helgina 28. febrúar – 2. mars en örvæntum ekki því handan við hornið, við enda gagnanna sé paradísin sem er hið íslenska haust? Lá ykkur svona mikið á að reyna í örvæntingu að fá þessum fundi frestað að þið gátuð ekki einu sinni klárað lygasöguna með því að segja að það verði geggjað veður 28. september? Eða 35. október?“
Segir að endingu:
„Ég hefði miklu frekar getað gleypt það að Jens Garðar væri búinn að tala við fiskana og þeir segja að það verði blindbylur í febrúar en bongó í nóvember. En menn lögðu það ekki einu sinni á sig að kokka það upp. Sorglegt.“
Ps:
„Höfundur hefur ekki HUGMYND um hvernig veðrið verður í lok febrúar, hvað þá í haust.“