Formaður Flokks fólksins, Inga Sæland, segir það alveg ljóst að ríkisstjórnin sé með öllu óstarfhæf; formaður Samfylkingarinnar, Kristrún Frostadóttir, segir að ríkisstjórnin skuldi íslensku þjóðinni að setja verkefnin í forgang,en þetta kemur fram á RÚV.
Inga segir:

„Þetta er bara búið. Og spurning hvort forsetinn fari ekki bara að stíga inn í vegna þess að það er nú hans efsta hlutverk að sjá til þess hér sé við störf starfhæf ríkisstjórn. En hún er ekki starfhæf.“

Spennu gætir innan ríkisstjórnarinnar; sérstaklega eftir fund Sjálfstæðisflokksins sem boðað var til í skyndi. Áður hafði VG samþykkt á Landsfundi að flýta alþingiskosningum til vorsins – því ríkisstjórnarsamstarfið væri á síðustu metrunum.
Kristrún er á því að þetta sé ekki slæm staða:
„Það er vonandi, loksins, að renna upp fyrir þeim að þetta gengur ekki svona lengur. Þannig að við verðum líka að sjá það jákvæða í stöðunni; það styttist vonandi í að við fáum nýja ríkisstjórn og nýtt upphaf,“ segir hún og bætir við:
„Þessir stjórnmálamenn og allir ríkisstjórnarflokkarnir skulda auðvitað þjóðinni að setja verkefnin í forgang. Fórnarkostnaðurinn af því að að halda þessu ríkisstjórnarsamstarfi gangandi er einfaldlega orðinn of mikill fyrir þjóðina og fólkið í landinu.“