Stjórn Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur telja að hætta, þar á meðal brunahætta, stafi af tugum húsa sem hafi staðið auð og verið vanrækt svo áratugum skipti, að því er fram kemur í yfirlýsingu sem þau hafa sent frá sér.
Í yfirlýsingunni skorar stjórnin á byggingarfulltrúann í Reykjavík, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, borgarfulltrúa og þingmenn að koma í veg fyrir að eigendur húsa komist upp með að láta þau standa auð og vanrækt í lengri tíma.
Í greinargerðinni er að finna fjölmörg dæmi um hús sem staðið hafa auð í þónokkurn tíma. „Ástand margra þessara húsa er með þeim hætti að af þeim stafar hætta, umhverfi þeirra er subbulegt og óheilsusamlegt og ítrekað hefur kviknað í þeim og hefur það sett nærliggjandi byggð í hættu,“ segir meðal annars. Krefst stjórnin að gripið verði til aðgerða í málinu.