- Auglýsing -
Nóttin virðist hafa verið annasöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en 74 mál voru skráð frá klukkan fimm seinnipartinn í gær til klukkan fimm í morgun.
Þrjár líkamsárásir eru á borði lögreglu eftir nóttina, fimm umferðaróhöpp, fjórir voru handteknir fyrir ölvunar og/eða fíkniefnaakstur og þá gista sex nú í fangageymslum lögreglunnar, eftir því er fram kemur í dagbók hennar.