- Auglýsing -
Seint í gærkvöldi greindust tveir til viðbótar með COVID-19 veiruna hér á landi. Alls hafa 16 greinst.
Sjö ný tilfelli voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala í gær.
Þessu er sagt frá í Morgunblaðinu. Þar kemur fram að fólkið smitaðist erlendis en það hafði dvalið á Veróna á Ítalíu. Fólkið er ekki alvarlega veikt heldur með „hefðbundin flensueinkenni“.
Í gær voru 30 sýni rannsökuð á Landspítalanum og í heild hafa um 230 sýni verið rannsökuð.