- Auglýsing -
Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19. Sá er sextándi Íslendingurinn sem lést af þessari skæðu veiru.
Aðstandendum er vottuð samúð á vef Landspítalans þar sem tilkynnt var um andlátið.
Tveir létust á Landspítalanum um helgina af völdum COVID. Annar var á áttræðisaldri meðan hinn var níræður. Nú hafa því sex Íslendingar látist í þriðju bylgju COVID en í heild hafa sextán fallið frá af völdum veirunnar.