Maðurinn brást ókvæða við þegar hann var handtekinn.
Farþegar lestar sem var á leið frá Ósló til Björgvinjar í gærkvöldi hefur verið gert að fara í tveggja vikna sóttkví eftir að maður, sem ferðaðist með lestinni, gekk upp að fólkinu, andaði fram í það og sagðist vera smitaður af kórónaveirunni. Um er að ræða fimmtíu farþega en auk þeirra hefur áhöfn lestarinnar og starfmenn lestarstöðvarinnar í Ål í Hallingdal verið skikkuð í sóttkví.
RÚV greinir frá þessu og jafnframt að maðurinn hafi brugðist ókvæða við þegar lögreglan hafði hendur í hári hans á lestarstöðinni í Ål og ráðist að henni með slökkvitæki sem var um borð í lestinni, áður en henni tókst að yfirbuga hann.