Það var svo sannarlega glatt á hjalla Hafnfirðingurinn þegar Sigurður Björgvinsson hélt upp á fimmtugsafmæli sitt með pompi og prakt.
Mynd: Skjáskot af Facebook
Sigurður og borinn og barnfæddur Hafnfirðingur líkt og faðir hans, stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson.
Sigurður var í Víðistaðaskóla alla skólaskylduna en hélt síðan í Verzló. Í dag er hann framkvæmdastjóri hjá Innes en áður lagði stundaði hann nám í sálfræði við H.Í.
Björgvin, faðir hans, var ekki nema nítján ára gamall þegar Sigurður kom í heiminn árið 1971. Sigurður ólst þó ekki upp hjá Björgvini en hefur alltaf verið í sambandi við hann og tvö börn sem Björgvin á, hálfsystkin Sigurðar, Svölu og Krumma.
Eins og myndirnar bera glöggt með sér var veislan hin glæsilegasta og glatt á hjalla. Enda fullt tilefni til.
Eins og kemur fæstum á óvart er Sigurður góður söngvari eins og hann á kyn til, en hann hefur þó ekki lagt sönginn fyrir sig. Segja kunnugir að hefði hann gert það hefðði beðið hans glæsilegur söngferill. En Sigurður er sáttur maður sem náð hefur langt á sviði viðskipta; þekktur fyrir glaðlega framkomu og sitt breiða bros.