„Ég skil ekkert í þessum tölum. Af hverju þær hafa breyst svona svakalega í talningunni í Suðvesturkjördæmi,“ sagði Sigmar Guðmundsson í samtali við Vísi en hann situr í öðru sæti Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi og tekur nú þátt í því happdrætti sem úthlutun jöfnunarsæta er.
Hann segir að úrslitin hafi komið sér á óvart en óskar ríkisstjórninni til hamingju en hún sigraði með afgerandi hætti. Viðreisn bætti við sig einum þingmanni í kosningunum, ef staðan núna gengur eftir.
Ljóst er að niðurstöður kosninganna séu mikill sigur fyrir Framsókn. Á fráfarandi þingi var Framsókn með 8 menn en samkvæmt nýjustu niðurstöðum hafa þeir nú þrettán og bæta við sig fimm.
Þá bætti Flokkur fólksins við sig tveimur þingmönnum, og fóru úr fjórum í sex.