Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í Skógarhlíð 14.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri mun fylla í skarð Víðis Reynissonar, yfirlögregluþjóns hjá Ríkislögreglustjóra sem fær langþráð frí eftir að hafa stýrt 54 upplýsingafundum í röð. Víðir mætir aftur á sinn stað á morgun og stýrir 56. fundinum.
Á fundinum í dag mun Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi.
Gestur fundarins verður Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar.