- Auglýsing -
Maðurinn sem lést af slysförum á Eyrarbakka í gær hét Sigurður Magnússon.
Sigurður var fæddur 19. apríl 1965 en hann bjó á Selfossi. Lætur hann eftir sig eiginkonu, fjögur börn, tengdabörn, tvö barnabörn, móður og systur. Kemur þetta fram í tilkynningu aðstandenda Sigurðar.
Greint var frá banaslysi karlmanns á sextugsaldri á byggingarsvæði á Eyrarbakka um klukkan þrjú í gærdag. Lögreglan rannsakar tildrög slyssins.