Veðurstofa Íslands hefur birt fyrsta myndband af eldgosinu í Geldingadölum við Fagradalsfjall. Myndbandið má sjá hér að neðan.
Eldgos er hafið við Fargradalsfjall. Miklar kvikuhreyfingar hafa verið á Reykjanesskaga undanfarnar vikur. Lögregla á leið frá Keflavík til að meta stöðuna. Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug yfir svæðið. Búið er að loka fyrir umferð á Suðurstrandavegi en vegurinn til Grindavíkur er opinn.
Gosið kom upp í Geldingardölum sem staðsett er milli Fagradalsfjalls, Litla hrúts og Keilis en dalurinn myndar lítinn þrýhyrning þar á milli. Þetta er stórviðburður enda hefur ekki gosið á Reykjanesi í 780 ár.
Veðurstofan náði þessu myndbandi af eldgosinu og birti eftirfarandi texta með:
„Fyrsta mynd af gosinu. Tekin úr þyrlu Landhelgisgæslu
nnar. Syðri endi tungunnar er um 2,6 km frá Suðurstrandarve gi. Miðað við fyrstu upplýsingar er sprungan um 200 m löng. Hraun virðist renna hægt.“