Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason er staddur í Barcelona á Spáni en af honum náðist myndband þar sem hann skokkaði nokkuð sólbrúnn við ströndina.
Mannlíf opnaði aðra metoo-bylgju hérlendis með því að opna á mál Sölva og ásakanir á hendur honum fyrir ósæmilega hegðun í garð kvenna. Hann steig síðan sjálfur fram og sór af sér öll ofbeldisverk. Á endanum stigu svo tvær konur fram og kærðu Sölva.
Sjá einnig: Yfirlýsing kvennanna í heild sinni: „Sölvi rauk þá upp og hrinti mér í gólfið“
Mikið fár var í kringum mál Sölva í samfélaginu þar sem þjóðin skiptist í hópa, með og á móti fjölmiðlamanninum. Á endanum bárust af því fréttir að hann hafi sjálfur skráð sig inn á Klepp og síðan þá hefur ekkert sést af honum á samfélagsmiðlum hvar hann var áður frekar virkur. Íslensk kona var síðan að taka myndband við ströndina við Barcelona og fyrir tilviljun náði hún Sölva að skokka.
Mannlíf hefur ítrekað reynt að ná tali af Sölva síðan ásakanirnar hófust en hann lætur ekki ná í sig.