Grindvíkingar hafa þegar hafið undirbúning að árlegri bæjarhátíð sinni, Sjóaranum síkáta, sjómanna- og fjölskylduhátíð, sem fram átti að fara í 25 sinn um sjómannadagshelgina í ár. Hátíðin hefur í gegnum tíðina verið vel sótt og þúsundir gesta heimsótt Grindavík þessa helgi.
Megintilgangur hátíðarinnar er að stuðla að samveru Grindvíkinga og gesta þeirra. Vegna samkomubanns er erfitt að hugsa að bæjarhátíðin fari fram með öðrum hætti en að fólk komi saman og skemmti sér. Í kjölfar víðtæks samráðs við helstu hagsmunaaðila hátíðarinnar hefur verið ákveðið að Sjóarinn síkáti fari ekki fram í ár í ljósi aðstæðna í samfélaginu.
Þó svo ekki fari fram hátíðardagskrá með hefðbundnum hætti munu aðstandendur Sjóarans síkáta leitast við að brjóta upp hversdagsleikann síðar á árinu. Grindvíkingar eru þekktir fyrir að sýna samstöðu þegar á reynir og munu saman sigla í gegnum það ástand sem nú ríkir.
Sjóarinn síkáti fer því næst fram sjómannahelgina árið 2021.