- Auglýsing -
Tveir skipverjar slösuðust um borð í togara við veiðar, skammt undan landi. Skipið hélt þegar áleiðis til hafnar með mennina sem voru beinbrotnir. Atvikið var tilkynnt til lögreglu og beið sjúkrabíll sjómannanna þegar komið var að landi. Þeir voru fluttir á sjúkrahús til skoðunarog aðhlynningar. Nóttin var róleg hjá lögreglu. Hefðbundin afbrot á borð við akstur undir áhrifum og innbrot voru á meðal viðfangsefna löggæslumanna.