Aðili var handtekinn og vistaður grunaður um blygðunarsemisbrot fyrr um nóttina.
Þá var tilkynnt um aðila er hafði fallið á rafmagnshlaupahjóli og fengið gat á höfuðið. Sá slasaði reyndist vera búinn að drekka áfengi um nóttina. Var hann fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið.
Skorið var á hjólbarða á allavega 12 bifreiðum í sömu götunni í miðbænum; málið í rannsókn.
Aðili var tekinn höndum og vistaður fyrir líkamsárás í heimahúsi. Húsráðandi bað um aðstoð þar sem búið var að brjótast inn á heimili hans. Gerandi var á vettvangi þegar lögreglu bar að; hann var handtekinn; vistaður vegna málsins.
Tilkynnt um ofbeldi og skemmdarverk í heimahúsi. Gerandi var farinn er lögregla bar að garði; hins vegar er lögregla var að vinna í málinu á vettvangi kom sjálfur gerandinn keyrandi fram hjá vettvangi: Var hann auðvitað stöðvaður stuttu seinna; kom þá í ljós að hann var undir áhrifum eiturlyfs er kallast áfengi. Hann var handtekinn og vistaður vegna málsins.