Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur opinberað vilja sinn til þess að taka við formennsku í Sjálfstæðisflokknum af Bjarna Benediktssyni sem er með veikt umboð eftir að hann tók sigraði formannsslag við Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherrameð einungis 60 orósentum atkvæða.
Þórdís Kolbrún ræðir formannsdraum sinn í hlaðvarpinu Chat after dark sem Viðskiptablaðið endurómar. Þar segist hún vera tilbúin í stólinn. Þá er svo að skilja að hún sé orðin þreytt á samstarfinu við Vinstri græna þar sem hún segist vera orðin „þyrst“ í samstarf til hægri og mærir Viðreisn.
Þetta viðtal felur í sér stórpólitísk tíðindi. Líklegt er að Bjarni hafi samið við hana um lok formannsferils síns og vilji tryggja að Guðlaugur Þór komist ekki að. Ef ekki, þá er hún að senda Bjarna skýr skilaboð um að hans tími sé að verða liðinn. Lengi hefur verið uppi orðrímur um að Bjarni sé orðinn leiður á argaþrasinu og vilji komast í skjól …