Katrín hertogaynja tók fallega kjóla og fjölbreytt skart með sér í þriggja daga heimsókn til Írlands en hún er stödd þar í landi ásamt Vilhjálmi.
Katrín, sem er þekkt fyrir að kunna að blanda fordýrum fatnaði saman við föt á viðráðanlegu verði, vekur alltaf athygli fyrir klæðnað.
Katrín var flott í gær þegar hún og Vilhjálmur hittu Michael D. Higgins forseta Írlands og eiginkonu hans, Sabinu Higgins. Katrín klæddist grænu og bar demantseyrnalokka frá breska merkinu Asprey sem kosta upphæð sem nemur um 2,8 milljónum króna.
Síðar sama dag heimsótti hún höfuðstöðvar Guinnes. Þá hafði hún skipt demantseyrnalokkunum út fyrir eyrnalokka úr sænsku keðjunni H&M sem kosta sex pund sem gerir um tæpar 1.000 krónur miðað við núverandi gengi.