Íbúar Urriðaholts hafa reist of háa skjólveggi án leyfis. Jón Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf., hefur farið fram á að Garðabær grípi inn í og geri eitthvað í þessu. Vísir greinir frá.
„Þetta er hlutur sem hefur byrjað smátt og smátt, haldið áfram og svo er þetta orðið það umsvifamikið að það er farið að skemma götumynd hverfisins,“ sagði Jón Pálmi í samtali við Vísi. Sérstök ákvæði eru um framkvæmd og uppsetningu skjólveggja í deiliskipulagi hverfisins
Skjólveggirnir hafa staðið í talsverðan tíma og „eru í hróplegu ósamræmi við deiliskipulag og til þess fallnir að rýra götumynd hverfisins,” eins og segir í erindinu. „Farið er fram á að Garðabær bregðist nú þegar við óleyfisframkvæmdum og sjái til þess að þessum málum sé komið í lag.”
Urriðaholt ehf. þróaði skipulag og hugmyndafræði hverfisins í samráði við Garðabæ. Þá var fyrirtækið upphaflegur eigandi landsins sem hverfið reis á.