Skólahald í Seljaskóla fellur niður í dag fram til þriðjudags vegna kórónuveirusmita. Auk þess verður frístundastarf og íþróttaæfingar grunnskólabarna fellt niður.
Smitin eru bæði hjá nemendum og kennurum en mikil óvissa hefur ríkt í skólum vegna fjölda smita nýverið.
Morgunblaðið fjallaði um smit grunnskólans í morgun. Sagði Jón Viðar Matthíassn, framvæmdastjóri almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins og slökkviliðsstjóri SHS að staðan væri orðin ansi þröng.
Fylgst er með fleiri grunnskólum og staðan metin á ný hvern dag. Aðspurður sagði Jón Viðar ekki útilokað að fleiri skólum yrði lokað á næstunni.
„Það kæmi mér ekkert á óvart miðað við hvernig þetta hefur þróast síðustu daga“.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sendi frá sér nýtt minnisblað í gær. Ríkisstjórn mun þá ræða saman í dag en afar líklegt þykir að lagt hafi verið til harðari aðgerða en þeirra sem nú eru í gildi.