Maðurinn sem hóf skothríð í Dalseli á Egilsstöðum síðastliðinn fimmtudag, var í dag hnepptur í tveggja vikna gæsluvarðhald.
Maðurinn sem er á fimmtugsaldri, skaut á tvö hús og nokkra bíla síðasta fimmtudagskvöld en skaut svo í átt að lögreglu sem í kjölfarið skaut manninn í kviðinn. Er hann nú að jafna sig á Landspítalanum.
Í tilkynningu frá embætti héraðssaksóknara kemur fram að málið sé rannsókn málsins varði meðal annars tilraun til manndráps, valdstjórnarbrotum, líkamsárás, hótunum og almannahættubrotum auk brot gegn vopnalögum og barnaverndarlagabrotum.
Samkvæmt frétt MBL.is dvelur skotmaðurinn nú á almennri deild en hann er á batavegi eftir tvísýna baráttu á gjörgæsludeild Landspítalans. Er hans gætt af lögreglu á sjúkrahúsinu.
Sjá einnig hér