Borgaryfirvöld í Dublinar hafa aflýst hinni árlegu skrúðgöngu á degi heilags Patricks þann 17. mars, til að hamla útbreiðslu kórónaveirunnar sem veldur Covid-19. Árlega taka tugir þúsunda fólks þátt í göngunni sem er stærsti viðburður ársins á Írlandi.
Í frétt írsku útvarpsstöðvarinnar RTÉ um málið kemur fram að borgaryfirvöld í Cork hafi riðið á vaðið í morgun og aflýst sinni göngu, sem dregur til sín um 50.000 þátttakendur árlega. Í yfirlýsingu borgarstjórnarinnar vegna málsins kom fram að heilsa almennings væri það sem öllu máli skipti og það væri rétt ákvörðun að aflýsa göngunni.
Írski heilbrigðisráðherrann, Simon Harris, sagði í morgunþætti RTÉ í morgun að ástandið væri grafalvarlegt og mikil hætta væri á að þróunin í útbreiðslu veirunnar í Írlandi yrði svipuð og í öðrum Evrópulöndum, til dæmis á Ítalíu, í Frakklandi og Þýskalandi.
Tuttugu og einn einstaklingur hefur nú greinst með veiruna á Írlandi og tólf á Norður Írlandi, en enn hefur ekki verið tilkynnt um dauðsföll af völdum hennar í landinu.