- Auglýsing -
Gríðarlegur verðmunur á meltingarensími. Í Urðarapóteki kostar dós af Digest Gold metlingarensími 6990 krónur en hjá Lyfju kostar samskonar dós 9310 krónur. Það munar því 33 prósentum á verði. Þetta bendir Halla á inn á Facebook-grúppunni Vertu á verði.
Mannlíf leitaði viðbragða hjá Lyfju og fékk neðangreint svar:
Þetta er óeðlilegur verðmunur þannig að við þurfum greinilega að taka samtalið við okkar birgja og taka svo ákvörðun eftir það samtal um næstu skref.
Þetta mál undirstrikar að það borgar sig að vera vel á verði.