Lögregla handtók í gærkvöldi þrjá menn í kjölfar slagsmála í miðbæ Reykjavíkur. Rannsókn lögreglu beinist þó ekki að slagsmálunum heldur sölu fíkniefna og ólöglegri dvöl á Schengsvæðinu. Lögregla gekk á lyktina í gærkvöldi þegar tilkynning barst um kannabislykt. Einn maður var handtekinn og í kjölfarið framkvæmt húsleit þar sem fíkniefni fundust.
Síðar um kvöldið barst lögreglu tilkynning vegna manns sem er sagður hafa ógnað ungmennum. Þá kemur fram í dagbók lögreglu að hann hafi reynt að stela af þeim hlaupahjóli. Lögregla mætti á vettvang og ræddi við manninn en ekki er útilokað að um misskilning hafi verið að ræða. Foreldrum barnanna var gert viðvart. Nokkrir krakkar reyndu að stela úr matvörubúð í gærkvöldi. Lögreglu var gert viðvart sem hafði samband við foreldra þeirra. Að lokum stöðvaði lögregla ökumann en sá er grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna.